Í nýjasta þætti Heilsutímans var að finna eitthvað fyrir alla. Jóhannes Kári Kristinsson augnlæknir fjallaði um augnþurrk og ráð við honum, Svava Jónsdóttir heilsu- og mannauðsráðgjafi spjallaði um streitu á vinnustöðum og Agnes Þóra Árnadóttir næringarfræðingur og Ragnheiður K. Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Hilton Reykjavík Spa sögðu frá spennandi námskeiði fyrir 60 ára og eldri. Hildur Kristín sjúkraþjálfari var einnig á sínum stað og gaf góð ráð til að fyrirbyggja meiðsli.
The post Heilsutíminn: Augnheilsa, stress og hreyfing appeared first on Fréttatíminn.